Skilmálar

Velkomin á vefsíðu AK Pure Skin sem er í eigu og rekstri AK Pure Skin ehf. kennitala. 650119-0290.

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í gegnum akpureskin.com þar sem þeir innihalda mikilvægar upplýsingar. Með því að nota vefverslun AK Pure Skin samþykkir þú þessa skilmála. Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband í gegnum tölvupóstfangið akpureskin@akpureskin.is

VÖRUR TIL EINKANOTA

AK Pure Skin vörurnar seldar í vefverslun akpureskin.com eru til persónulegra nota eingöngu. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum AK Pure Skin án tilskilinna leyfa.

Fyrir þá sem hafa áhuga á vörum AK Pure Skin í endursölu vinsamlegast hafið samband í gegnum tölvupóstfangið akpureskin@akpureskin.is

GREIÐSLULEIÐIR

Eftirfarandi greiðsluleiðir og kort er hægt að nota í vefverslun AK Pure Skin.

Kreditkort (örugg greiðsla í gegnum vefþjón Salt Pay).

  • Visa 
  • Mastercard 
  • Amex
  • Diners

 

Debetkort (örugg greiðsla í gegnum vefþjón Salt Pay).

  • VISA Electron
  • Maestro

 

SKATTAR OG GJÖLD

Öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Það verð gildir allt kaupferlið og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram.

FERILL PANTANA 

Þegar þú hefur lokið við að panta í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum. Þegar vara er farin í póst berst þér staðfesting þess eðlis. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga en póstsending getur tekið 1-4 daga (innanlands).

Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á akpureskin@akpureskin.is 

AFGREIÐSLA PANTANA

Pósturinn dreifir vörum til viðskiptavina AK Pure Skin á Íslandi nema um annað sé samið. DHL Express dreifir vörum til viðskiptavina erlendis.

Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða allar pantanir næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru frá Póstinum. Skilmálar Póstsins eru aðgengilegir á eftirfarandi vefsíðu https://posturinn.is/posturinn/upplysingar/vidskiptaskilmalar  

Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar DHL Express um afhendingu vöru frá DHL. Skilmálar DHL Express eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins https://mydhl.express.dhl/ba/en/legal/terms-and-conditions.html 

AK Pure Skin ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi Póstsins eða með DHL Express. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er afhent af AK Pure Skin ehf og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.

SENDINGARKOSTNAÐUR

Sendingarkostnaður innanlands er 1.700kr kr óháð vöru með heimsendingu en 1.200kr á næsta pósthús eða póstbox. Vörur eru fluttar heim að dyrum þar sem Pósturinn býður upp á þá þjónustu en annars er flutt á viðkomandi pósthús. Nánari upplýsingar um þjónustu Póstsins má finna á posturinn.is

Sendingarkostnaður DHL Express til útlanda fyrir Norður-Ameríku og Evrópu er 3.000 kr og tekur um 2 daga. DHL Express sendingarkostnaður fyrir önnur lönd í heiminum er 3.500 kr og tekur um 2-4 daga. 

AFSLÁTTAKÓÐAR

Afslættir með kóða eru almennt eingöngu gildir einu sinni og þegar kóðinn er notaður verður hann óvirkur og því ekki lengur gildur. Ekki er hægt að bæta við afslætti eftir að pöntun hefur verið staðfest, þess vegna þarf að tryggja að allar upplýsingar séu rétt skráðar áður en pöntun er staðfest.

AK Pure Skin áskilur sér rétt til að afturkalla afslátt, kynningarverð, kynningarkóða eða tilboð hvenær sem er.

SKILARÉTTUR

Skilafrestur er 14 dagar frá afhendingu vöru. Nauðsynlegt er að varan sé í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Starfsmaður AK Pure Skin metur ástand vöru og hvort hún sé endursöluhæf. AK Pure Skin ehf áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða endurgreiða vöru með afskriftum.

Endurgreiðsla nær ekki til flutningskostnaðar sem fellur til við afhendingu eða vöruskil. Vinsamlegast sendið tölvupóst akpureskin@akpureskin.is fyrir spurningar varðandi skilavöru.

GÖLLUÐ VARA

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir AK Pure Skin allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu. Vinsamlegast sendið tölvupóst akpureskin@akpureskin.is varðandi gallaða vöru.

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

ÖRYGGI

AK Pure Skin varðveitir ekki kreditkortanúmer sem gefin eru upp við kaup í vefverslun. Þegar komið er að því að gefa upp kortaupplýsingar og ganga frá greiðslu er viðskiptavinur á öruggu vefsvæði akpureskin.is í gegnum vefþjón Salt Pay. Allar greiðslur eru framkvæmdar í vottuðu umhverfi sem uppfyllir PCI DSS öryggisstaðal.

Vefur AK Pure Skin notast við SSL skírteini sem tryggir öryggi í gagnaflutningi og samskiptum. Það tryggir að utanaðkomandi aðilar geta ekki komist inn í upplýsingar og gögn sem streyma frá notendum vefsins.

LÖG OG VARNARÞING

Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.

ANNAÐ

AK Pure Skin ehf áskilur sér rétt til að fella niður pöntun ef nauðsynlegt reynist undir einhverjum kringumstæðum, það gæti m.a. gerst vegna ranga verðupplýsinga í netverslun eða að vara er ekki lengur fáanleg hjá AK Pure Skin. Viðskiptavinur er upplýstur um slíkt eins fljótt og auðið er.

Allt efni á vef akpureskin.is, þ.m.t. vörumerki, myndir, texti, ljósmyndir, grafík, hljóð og mynd, er í eigu AK Pure Skin ehf. Ekki er heimilt að nota, afrita eða selja efni af síðunni án samþykkis okkar. Vinsamlegast hafið samband við akpureskin@akpureskin.is

Veldu gjaldmiðil